ljóð

Óður einyrkjans

Bókin Óður einyrkjans eftir Stefán frá Hvítadal var önnur bók Stefáns og kom út árið 1921, en þá voru þrjú síðan fyrsta bók hans Söngvar förumannsins leit dagsins ljós. Er bókin mjög persónuleg bæði hvað varðar stíl og yrkisefni. Stefán hafði kynnst þessum stíl í Noregi þar sem hann dvaldist um tíma. Ungt fólk hreifst mjög af ljóðum Stefáns eins og manninum sjálfum enda var hann hálfgildings förumaður, nýkominn heim eftir alllanga dvöl í framandi landi, fátækur og heilsulaus og þó enginn hversdagsmaður heldur höfðinglegur í allri sinni fátækt, öruggur í framgöngu og ágætlega til þess fallinn að verða persónuleg fyrirmynd hinnar ungu, óþreyjufullu skáldakynslóðar sem fagnaði nýjum skáldum í draumórakenndri hrifningu.

HÖFUNDUR:
Stefán frá Hvítadal
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 54

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :